kastro.

Um Kastro

Tæknifyrirtækið á bak við dmz.

Kastro er sjálfstæður íslenskur hugbúnaðar- og öryggisrekstur Andra Péturs Hafþórssonar, rekinn á hans eigin kennitölu. Áherslan er á eigin vörur, ásamt afmarkaðri tækniráðgjöf og vefþjónustu undir heitinu Kastro Vefir.

Andri Pétur Hafþórsson

Andri Pétur Hafþórsson

Stofnandi, hugbúnaðarþróun og rekstur

andri.is

Ég vinn við kerfisstjórnun, tækniinnviði, netöryggi og hugbúnaðarþróun. Bakgrunnur minn nær meðal annars yfir upplýsingatækni fyrirtækja, flugumferðarstjórnarkerfi og tæknilega forystu hjá RVX.

Þar endurnýjaði ég alla tækniinnviði fyrirtækisins og stýrði flutningi þess í nýtt húsnæði. Ég hannaði nýju starfsstöðina frá grunni með kröfur TPN Gold að leiðarljósi og leiddi síðan fyrirtækið í gegnum vottunarferlið þar til vottun náðist.

Hjá Kastro sinni ég vöruþróun og samskiptum við viðskiptavini. Spurningar um vörur, þjónustu og öryggi berast beint til mín.

Persónuleg réttindi og reynsla Andra

ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.

Þessi réttindi og reynsla tilheyra Andra. Þau fela ekki í sér vottun á Kastro eða vörum þess.

Hvar eru gögnin?

Þjónustur Kastro eru hýstar í Finnlandi eða Þýskalandi. Viðkvæmustu gögnin eru varðveitt á Íslandi.

Nánari upplýsingar um vinnslu, varðveislu og þjónustuaðila þarf að skoða fyrir hverja þjónustu. Fyrir dmz vísum við á öryggisupplýsingar og mælingar vörunnar.

Rekstrarupplýsingar

Heiti
Kastro
Rekstraraðili og tengiliður
Andri Pétur Hafþórsson
Starfsstöð
Reykjavík, Ísland
Netfang
andri@kastro.is
Skráð heiti rekstraraðila
Andri Pétur Hafþórsson
Kennitala rekstraraðila
210898-2209
Skráð heimilisfang
Hamraborg 34
VSK-skráning
Ekki skráður á virðisaukaskattsskrá. Ekkert VSK-númer.