Skipulag og vefhönnun
Við byrjum á markmiði vefsins og því sem viðskiptavinir þurfa að finna. Síðan skipuleggjum við síður, efni og leiðir að fyrirspurn. Hönnunin tekur mið af fyrirtækinu þínu og efninu sem þú leggur til.
Kastro Vefir hannar og smíðar vefsíður sem kynna fyrirtækið þitt, útskýra þjónustuna og auðvelda fólki að hafa samband. Þú vinnur beint með Andra frá fyrstu hugmynd að opnun.
Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗Við byrjum á markmiði vefsins og því sem viðskiptavinir þurfa að finna. Síðan skipuleggjum við síður, efni og leiðir að fyrirspurn. Hönnunin tekur mið af fyrirtækinu þínu og efninu sem þú leggur til.
Vefurinn aðlagast mismunandi skjástærðum. Við förum yfir læsileika, valmyndir, tengla og fyrirspurnaform svo gestir geti kynnt sér þjónustuna og haft samband.
Grunnstillingar fela í sér lýsandi síðutitla, lýsingar fyrir leitarvélar, skýra fyrirsagnaröð og upplýsingar fyrir deilingu. Við skipuleggjum einnig áframsendingar af eldri slóðum þegar vefur er endurnýjaður.
Fyrir opnun förum við saman yfir vefinn. Þú færð aðganga og leiðbeiningar samkvæmt samningi. Eftir afhendingu geturðu valið hýsingu og viðhald, með eða án aðstoðar við smærri breytingar.
Það þarf ekki alltaf að byrja upp á nýtt. Við skoðum núverandi efni, hönnun og virkni og ákveðum hvað er þess virði að halda. Grunnleiðin miðast við 3–5 síður á einu tungumáli. Netverslun, bókanir, fleiri tungumál og kerfistengingar eru metin sérstaklega. Umfang, verð og tímasetningar eru samþykkt áður en vinna hefst.
Staða nýrra verkefna: Takmarkað svigrúm.
Verð og umfang
Þú getur greitt fyrir vefinn í upphafi eða valið mánaðaráskrift að fyrirtækjavef. Við staðfestum umfang, verð og greiðslufyrirkomulag áður en vinna hefst.
Fyrirtækjavefur
Frá 349.000 kr.
VSK er ekki innheimtur · Verkefnisverð
Fyrir fyrirtæki sem vill kynna þjónustu sína vel og auðvelda viðskiptavinum að hafa samband.
Meira svigrúm
Frá 499.000 kr.
VSK er ekki innheimtur · Verkefnisverð
Fyrir verkefni sem kalla á umfangsmeiri hönnun eða meiri vinnu við skipulag og framsetningu efnis.
Grunnverðið miðast við að þú leggir til efni á einu tungumáli. Fleiri tungumál, umfangsmikil textagerð, ljósmyndun og keypt efni eru verðlögð sérstaklega. Netverslun, bókunarkerfi, áskriftarkerfi, innskráning, birgðatengingar og aðrar kerfistengingar eru ekki innifaldar í grunnverði.
Vefur í mánaðaráskrift
Fáðu fyrirtækjavef án stofngjalds. Hönnun og smíði 3–5 síðna vefs á einu tungumáli, með efni frá þér, ásamt hýsingu, viðhaldi og aðstoð við smærri breytingar.
Allt að 2 beiðnir um aðstoð eða smærri breytingar á mánuði, að hámarki 45 mínútur samtals. Sama umfang vefs og í grunnleiðinni gegn eingreiðslu.
24.990 kr./mán.
VSK er ekki innheimtur
12 mánaða lágmarksbinding frá opnun. Lágmarksgreiðslur samtals 299.880 kr. án vsk.
Eftir fyrstu 12 mánuðina geturðu valið hýsingu og viðhald á 10.000 kr./mán. eða haldið áfram með aðstoð og smærri breytingar á 20.000 kr./mán. Verð eru án vsk.
Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗Þessar leiðir eru í boði frá opnun ef þú greiðir fyrir vefinn í upphafi, eða eftir fyrstu 12 mánuðina í mánaðaráskrift. Þú greiðir aðeins fyrir þá leið sem þú velur; ekkert viðbótarhýsingargjald bætist við mánaðaráskriftina.
10.000 kr./mán.
VSK er ekki innheimtur
Hýsing samkvæmt samkomulagi, vöktun og tæknilegt viðhald. Afritun eða endurheimt fyrri útgáfa er útfærð eftir þörfum vefsins.
Athuga svigrúm fyrir verkefni20.000 kr./mán.
VSK er ekki innheimtur
Hýsing og viðhald ásamt allt að 2 beiðnum um aðstoð eða smærri breytingar á mánuði. Alls eru 45 mínútur af vinnu innifaldar í mánaðargjaldinu.
Athuga svigrúm fyrir verkefniMánaðarþjónustan nær til afhents vefs. Viðgerðir vegna galla við afhendingu frá Kastro ganga ekki á innifalinn breytingatíma. Umfang, uppsögn og afhending eru skilgreind í samningi áður en vinna hefst.
Vinna utan innifalins umfangs er rukkuð á 14.990 kr. á klukkustund. VSK er ekki innheimtur. Við förum yfir áætlaðan kostnað og fáum samþykki þitt áður en sú vinna hefst.
Segðu mér frá fyrirtækinu og því sem þú vilt bæta. Við byrjum þar.
Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗andri@kastro.isTakmarkað svigrúm.