kastro.
Kastro Vefir

WordPress vefsíður og endurnýjun

Þarf WordPress vefurinn þinn betra útlit, skýrara efni eða tæknilega yfirferð? Kastro Vefir aðstoðar þig við að meta hvað má bæta og hvort núverandi kerfi henti áfram.

Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗

Byrjum á vefnum sem þú ert með

Hönnun og efni

Við skoðum hvað gestir þurfa að finna, hvort þjónustan sé skýr og hvernig vefurinn virkar í síma. Góð hönnun og gagnlegt efni geta nýst áfram þótt framsetningin sé endurbætt.

Viðbætur og virkni

Við förum yfir hvaða hlutverki þema og viðbætur gegna. Eyðublöð, bókanir, netverslun og tengingar við önnur kerfi þurfa sérstakt mat áður en breytingar eða flutningur eru ákveðin.

Uppfærslur og hýsing

Við metum stöðu uppfærslna, hýsingar og afritunar og skilgreinum næstu skref. Viðhald á eldri WordPress vef er verðlagt eftir ástandi og umfangi; mánaðarleiðirnar hér að neðan miðast við afhentan vef samkvæmt samningi.

Flutningur og eldri slóðir

Ef ákveðið er að flytja eða endurbyggja vefinn kortleggjum við efni, slóðir og mikilvæga virkni. Við skipuleggjum áframsendingar og förum yfir DNS og tölvupóst áður en skipt er um hýsingu.

Þarf að skipta út WordPress?

Nei. WordPress getur áfram verið góður kostur ef þú þarft að breyta efni reglulega eða nýtir virkni sem hentar rekstrinum. Fyrir einfaldan kynningarvef getur sérsmíðaður vefur líka hentað. Við berum valkostina saman út frá þörfum, viðhaldi og kostnaði áður en við mælum með breytingu. Ekki er hægt að tryggja óbreytta stöðu í leitarniðurstöðum eftir flutning.

Staða nýrra verkefna: Takmarkað svigrúm.

Verð og umfang

hvað kostar góður vefur?

Þú getur greitt fyrir vefinn í upphafi eða valið mánaðaráskrift að fyrirtækjavef. Við staðfestum umfang, verð og greiðslufyrirkomulag áður en vinna hefst.

Fyrirtækjavefur

Vefur

Frá 349.000 kr.

VSK er ekki innheimtur · Verkefnisverð

Fyrir fyrirtæki sem vill kynna þjónustu sína vel og auðvelda viðskiptavinum að hafa samband.

  • 3–5 síður á einu tungumáli
  • Hönnun í samráði við þig; þú leggur til efnið
  • Útlit sem aðlagast skjástærð og eitt einfalt fyrirspurnaform
  • Grunnstillingar fyrir leitarvélar og umsamdar áframsendingar af eldri slóðum
  • Ein umferð breytinga eftir yfirferð þína og leiðbeiningar við afhendingu
Athuga svigrúm fyrir verkefni

Meira svigrúm

Sérsniðinn vefur

Frá 499.000 kr.

VSK er ekki innheimtur · Verkefnisverð

Fyrir verkefni sem kalla á umfangsmeiri hönnun eða meiri vinnu við skipulag og framsetningu efnis.

  • Meiri vinna við hönnun og skipulag efnis
  • Skýrt tilboð sem lýsir því sem verður afhent
  • Fjöldi síðna og virkni ákveðin í samráði við þig
  • Fjöldi yfirferða og breytinga skilgreindur í tilboði
  • Kerfistengingar og frekari breytingar verðlagðar sérstaklega
Athuga svigrúm fyrir verkefni

Grunnverðið miðast við að þú leggir til efni á einu tungumáli. Fleiri tungumál, umfangsmikil textagerð, ljósmyndun og keypt efni eru verðlögð sérstaklega. Netverslun, bókunarkerfi, áskriftarkerfi, innskráning, birgðatengingar og aðrar kerfistengingar eru ekki innifaldar í grunnverði.

Vefur í mánaðaráskrift

Vefur, hýsing og þjónusta

Fáðu fyrirtækjavef án stofngjalds. Hönnun og smíði 3–5 síðna vefs á einu tungumáli, með efni frá þér, ásamt hýsingu, viðhaldi og aðstoð við smærri breytingar.

Allt að 2 beiðnir um aðstoð eða smærri breytingar á mánuði, að hámarki 45 mínútur samtals. Sama umfang vefs og í grunnleiðinni gegn eingreiðslu.

24.990 kr./mán.

VSK er ekki innheimtur

12 mánaða lágmarksbinding frá opnun. Lágmarksgreiðslur samtals 299.880 kr. án vsk.

Eftir fyrstu 12 mánuðina geturðu valið hýsingu og viðhald á 10.000 kr./mán. eða haldið áfram með aðstoð og smærri breytingar á 20.000 kr./mán. Verð eru án vsk.

Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗

Eftir opnun: hýsing og viðhald.

Þessar leiðir eru í boði frá opnun ef þú greiðir fyrir vefinn í upphafi, eða eftir fyrstu 12 mánuðina í mánaðaráskrift. Þú greiðir aðeins fyrir þá leið sem þú velur; ekkert viðbótarhýsingargjald bætist við mánaðaráskriftina.

Hýsing og viðhald

10.000 kr./mán.

VSK er ekki innheimtur

Hýsing samkvæmt samkomulagi, vöktun og tæknilegt viðhald. Afritun eða endurheimt fyrri útgáfa er útfærð eftir þörfum vefsins.

Athuga svigrúm fyrir verkefni

Hýsing, viðhald og breytingar

20.000 kr./mán.

VSK er ekki innheimtur

Hýsing og viðhald ásamt allt að 2 beiðnum um aðstoð eða smærri breytingar á mánuði. Alls eru 45 mínútur af vinnu innifaldar í mánaðargjaldinu.

Athuga svigrúm fyrir verkefni

Mánaðarþjónustan nær til afhents vefs. Viðgerðir vegna galla við afhendingu frá Kastro ganga ekki á innifalinn breytingatíma. Umfang, uppsögn og afhending eru skilgreind í samningi áður en vinna hefst.

Vinna utan innifalins umfangs er rukkuð á 14.990 kr. á klukkustund. VSK er ekki innheimtur. Við förum yfir áætlaðan kostnað og fáum samþykki þitt áður en sú vinna hefst.

hvernig ætti þinn vefur að vera?

Segðu mér frá fyrirtækinu og því sem þú vilt bæta. Við byrjum þar.

Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗andri@kastro.is

Takmarkað svigrúm.