Yfirferð á núverandi umhverfi
Förum yfir klasa, net, geymslur, aðgangsstýringu og afritun. Þú færð skýra mynd af veikleikum og forgangsraðaðar tillögur að úrbótum.
Innviðir · Sýndarvæðing · Geymslur
Hvort sem þú ert að byggja nýjan klasa, flytja úr öðru umhverfi eða leysa vandamál í rekstri, hjálpa ég þér að finna leið sem hentar innviðunum og teyminu þínu.
Ræðum innviðina þínaAndri Pétur Hafþórsson
Ég heiti Andri Pétur Hafþórsson og hef notað Proxmox frá 2017. Í dag vinn ég við rekstur eins stærsta Proxmox-umhverfis á Íslandi, ásamt Ceph-geymslum. Sú reynsla nýtist í ráðgjöf þar sem aðgengi, afköst og daglegt viðhald skipta máli.
Förum yfir klasa, net, geymslur, aðgangsstýringu og afritun. Þú færð skýra mynd af veikleikum og forgangsraðaðar tillögur að úrbótum.
Val á vélbúnaði, netuppbygging, quorum og háaðgengi. Við skipuleggjum stækkun og viðhald með raunverulegt vinnuálag og rekstrargetu í huga.
Ráðgjöf um diska, OSD, pools, CRUSH-reglur, bilanamörk og geymslurými. Förum yfir afköst og hvernig klasinn bregst við bilunum og endurheimt.
Mat á sýndarvélum og tengdum kerfum, prufuflutningar og áætlun fyrir framkvæmd. Skilgreinum prófanir, ásættanlegan niðritíma og leið til baka áður en flutningur hefst.
Greining á einkennum í sýndarvélum, neti og geymslum. Við vinnum út frá mælingum og atvikaskrám og metum áhrif breytinga áður en þær eru gerðar.
Yfirferð á Proxmox Backup Server, endurheimtarprófunum og uppfærsluferlum. Skjalfesting og yfirferð með teyminu svo þekkingin haldist hjá þér.
Þú lýsir umhverfinu, markmiðunum og því sem veldur áhyggjum. Við sammælumst um umfang, tímaramma og verð áður en vinna hefst.
Við skoðum uppsetningu og gögn úr rekstri. Þú færð niðurstöður og tillögur með forgangsröðun, forsendum og næstu skrefum.
Ef verkefnið felur í sér breytingar eru þær skipulagðar með teyminu þínu. Prófanir, skjalfesting og yfirferð fylgja afhendingu.
Já. Verkefni getur verið afmörkuð yfirferð á núverandi Proxmox- eða Ceph-umhverfi með tillögum sem þitt eigið teymi framkvæmir.
Já. Við byrjum á að meta sýndarvélar, geymslur, net og tengingar við önnur kerfi. Umfang, prufuflutningar og leið til baka eru ákveðin áður en farið er í framkvæmd.
Ceph getur haldið þjónustu gangandi við ákveðnar bilanir, en kemur ekki í stað sjálfstæðra afrita. Afritun og prófuð endurheimt eru hluti af yfirferðinni.
Verð fer eftir umfangi og er samið áður en vinna hefst. Ráðgjöf og framkvæmd fara fram á umsömdum tímum. Sífelld vöktun eða sólarhringsvakt er ekki hluti af þessari þjónustu.
Þú lýsir umhverfinu, markmiðunum og því sem veldur áhyggjum. Við sammælumst um umfang, tímaramma og verð áður en vinna hefst.
Ræðum innviðina þínaSjálfstæð ráðgjöf frá Kastro. Proxmox og Ceph eru vörumerki viðkomandi rétthafa.